Kyrrðarbænastundir í Grensáskirkju í vetur
Kyrrðarbænastundir eru alla fimmtudaga kl. 18:15 í Grensáskirkju.
Kyrrðarbæn er afar einföld iðkun sem fer fram í þögn og gengur út á að hvíla í nærveru Guðs og samþykkja verk heilags anda innra með okkur. Þótt aðferðin sé einföld hefur hún umbreytandi áhrif á iðkandann með auknum andlegum þroska sem leiðir m.a. til aukinnar sjálfsþekkingar og dýpra sambands við Guð og menn.
Þú ert velkominn
Þú ert velkominn
Umsjónamenn stundanna eru: Bára Friðriksdóttir, Ingunn Björnsdóttir og Sigurður Vignir Jóhannsson. Velkomið að hafa samband á kyrrdarbaen@kyrrdarbaen.is