Kyrrðarbænastundir á fimmtudögum kl. 18.15

Verið velkomin á Kyrrðarbænastundir í Grensáskirkju á fimmtudögum kl. 18.15. Umsjón hafa Ingunn Björnsdóttir og sr. Bára Friðriksdóttir frá Kyrrðarbænasamtökunum á Íslandi ásamt sr. Maríu Guðrúnar. Ágústsdóttur, presti í Fossvogsprestakalli. 

Kyrrðarbæn (e. Centering Prayer) er aðferð til að hvíla í Guði með þeim ásetningi að leyfa Guði að vinna sitt kærleiksríka verk í lífi okkar.