Dásamlegar samverur foreldra og barna

Krílasálmanámskeið hefst í Grensáskirkju mánudaginn 21. september nk. kl. 10 og verður einu sinni í viku, alla mánudaga, í sex vikur til og með 26. október. Námskeiðið er ætlað ungabörnum á aldrinum þriggja mánaða til eins árs. Krílasálmastundirnar eru dásamlegar samverustundir barna og foreldra þeirra þar sem mikið er sungið og leikið. Á námskeiðinu er unnið með skynjun og upplifun, tónlistararfinn og menninguna. Sungnir eru sálmar og lög kirkjunnar, þekkt barnalög og kvæði, leikið, dansað og hlustað í notalegu umhverfi kirkjunnar. Fjöldi þátttakenda takmarkast við tólf börn. 

Ragnheiður Bjarnadóttir tónlistarkennari og séra Laufey Brá Jónsdóttir annast dagskrána, en skráning er á netfangið laufey@kirkja.is. 

Þátttaka er öllum að kostnaðarlausu. 

Verið hjartanlega velkomin á krílasálmanámskeið í Grensáskirkju.

Sungið, leikið, dansaðm unnið með menningararfinn

Umsjónaraðili/-aðilar