Fólk á öllum aldri - komum saman til kirkju
Á sunnudögum kl. 10:30 opnast dyr Grensáskirkju fyrir fólk á öllum aldri. Þá er í boði að sitja hefðbundna guðsþjónustu kl. 11 eða fara yfir í safnaðarheimili þar sem leiðtogar kirkjunnar leiða Krakkasálma.
Krakkasálmar hefjast einnig kl. 11 og er lifandi stund þar sem börnin stíga inn í biblíusögurnar í leik. Leiðtogar kirkjunnar syngja með börnunum barnasálma og biðja bænir. Þá er góð hressing í boði eftir stundina og litir og föndur á borðum.
Í guðsþjónustunni kl. 11 mun Ásta Haraldsdóttir organisti leika á hljóðfæri kirkjunnar og söngkonur frá Domus Vox syngja. Sr. Sigríður Kristín þjónar fyrir altari ásamt messuþjónum. Heitt er á könnunni fyrir og eftir guðsþjónustuna.
Verið hjartanlega velkomin í Grensáskirkju.
Á sunnudaginn er næst síðasti sunnudagur kirkjuársins
Já, nú styttist í það að aðventan gangi í garð. Á sunnudaginn heyrum við þessi fallegu orð Jesú úr Matteusarguðspjalli lesin:
"Komið til mín, öll þér sem erfiðið og þunga eruð hlaðin, og ég mun veita yður hvíld. Takið á yður mitt ok og lærið af mér því að ég er hógvær og af hjarta lítillátur og þá munuð þér finna hvíld sálum yðar. Því að mitt ok er ljúft og byrði mín létt.“ (Matt 11.28-30)