Barnastarf í Grensáskirkju á meðan á messunni stendur


Krakkarsálmar fara fram í Grensáskirkju alla sunnudaga kl. 11. Dagskráin hefst í messunni og þaðan ganga leiðtogarnir Iðunn, Gabríel og Gréta fram með börnin, þar sem sérstök dagskrá, Krakkasálmar, fer fram í Safnaðarheimilinu.

Krakkasálmar eru nýjung á vettvangi Grensáskirkju en um er að ræða vettvang fyrir börnin á sunnudögum í Grensáskirkju.

Verið velkomin í krakkasálma í Grensáskirkju. 

Börnin ganga inn í biblíusöguna

Í krakkasálmunum ganga börnin inn í biblíusöguna. Það er sungið, leikið og beðið. Biblíusagan er sögð á leikrænan máta þar sem öll börnin verða þátttakendur í frásögunni.