Guðsþjónusta í Grensáskirkju kl. 11 - Köllun í kærleika

Á sunnudaginn kemur er 1. sunnudagur eftir þrenningarhátíð.  

Þá heyrum við m.a. þessi fallegu orð lesin úr fyrra Jóhannesarbréfi: "Ótti er ekki í elskunni.  Fullkominn elska rekur út óttann." 

Sr. Sigríður Kristín þjónar fyrir altari ásamt messuþjónum.  Ásta Haraldsdóttir kantor kirkjunnar situr við flygilinn og kór kirkjunnar leiðir söfnuðinn í söng.  

Verið hjartanlega velkomin í Grensáskirkju.