Kirkjustarf fatlaðra eftir páska í Grensáskirkju

Verið öll velkomin í kirkjustarf fatlaðra í Grensáskirkju fimmtudaginn 4. apríl kl. 16-17.

Kaffisamveran, helgistundin og bænasamfélagið við kertaljósið verður allt á sínum stað.

Nú eru páskarnir búnir og vor í loftinu. Við fögnum því í kirkjustarfinu okkar.

Umsjón með starfinu hafa Guðný og Danni.

Hlökkum til að sjá ykkur.

Umsjónaraðili/-aðilar