Biblíusögur með leik og LEGO

Yfirskriftin að þessu sinni er Biblíusögur með leik og LEGO. Við munum lesa nokkrar Biblíusögur og tengja boðskap þeirra við nútímann. Við munum bæði leika þær með léttum leikmunum og byggja þær með LEGO kubbum.

Kirkjuprakkarar

Kirkjuprakkarar í Grensáskirkju eru á aldrinum 6-9 ára (1.-4. bekk). Foreldrar skrá börn sín til þátttöku með því að fylla út skráningarupplýsingar, hér á heimasíðunni, eða með því að senda upplýsingarnar á netfangið solveig@kirkja.is. Það er ókeypis að taka þátt. Umsjónarmenn starfsins og leiðtogar sækja börnin sem skráð eru yfir í Krakkakot, frístundarheimili Hvassaleitisskóla og fylgja þeim yfir í Grensáskirkju, sé þess óskað. Börn sem ekki eru í Hvassaleitisskóla geta mætt beint í Grensáskirkju. Að starfinu loknu er börnunum fylgt í frístundaheimilið eða forráðamenn sækja börnin í kirkjuna eða þau bjarga sér heim. 

Hvenær?

Á þriðjudögum kl. 15:00-16:30 og einn sunnudag kl. 11:00. 


Dagsetningar


Þriðjudaginn  13. október
Þriðjudaginn  20. október
Þriðjudaginn 27. október
Þriðjudaginn 3. nóvember
Þriðjudaginn 10. nóvember
Þriðjudaginn 17. nóvember


Sunnudaginn 22. nóvember kl. 11.00 – 12.30.