Kirkjuprakkarar (6-9 ára) eru á þriðjudögum kl. 14:50-16:00 í Grensáskirkju. 

TTT (10-12 ára) eru á þriðjudögum kl. 16:10-17:10 í Grensáskirkju. 

Skráning er á kirkja.is.

Hrekkjavöku-föndur í barnastarfinu í Grensáskirkju

Síðasta þriðjudagssamvera barnastarfsins þessarar annar lendir að þessu sinni á Hrekkjavökunni. Því fögnum við auðvitað og nýtum tækifærið vel. Boðið verður upp á Hrekkjavöku-föndur í barnastarfinu næsta þriðjudag. Við ætlum að skreyta gluggana í kirkjunni og gera hana svolítið skuggalega.

Seinni part dagsins verður svo velkomið að koma í Grikk eða gott í Grensáskirkju og fá eitthvað góðgæti fyrir.

Við munum svo ljúka þessari önn með fjölskyldumessu í Grensáskirkju sunnudaginn 5. nóvember kl. 11. Þá verður boðið upp á lifandi og skapandi stund þar sem margt verður í boði.