Vinir Hjálparstarfs kirkjunnar koma saman
Vinir Hjálparstarfsins fræðast um starfið og stilla saman strengi
Vinir Hjálparstarfs kirkjunnar koma saman í Grensáskirkju í hádeginu, síðasta mánudag í hverjum mánuði, til að fræðast um starfið og stilla saman strengi. Næsta samvera verður í safnaðarheimili Grensáskirkju mánudaginn 27. nóvember nk. kl. 12:00.
Háannatími hjá Hjálparstarfi kirkjunnar
Yfir hádegisverðinum mun fulltrúi frá Hjálparstarfi kirkjunnar segja okkur frá starfinu framundan, en aðventu- og jólatíminn er háannatími hjá Hjálparstarfi kirkjunnar.
Skráning
Tilkynna þarf þátttöku á netfangið help@help.is eða í síma 528 4400 fyrir kl. 9:00 föstudaginn 24. nóvember nk. Verð fyrir máltíðina er 3.000 kr. og mun afraksturinn renna til Hjálparstarfs kirkjunnar. Umsjón með matseldinni að þessu sinni hafa Bent Pedersen og Kolbrún Guðjónsdóttir, en á boðstólnum verður hátíðarmatur í aðdraganda aðventu- og jóla.
Hugmyndin
Hugmyndin að baki samverunum er að fólk geti hist stutt í hádeginu, borðað saman og rætt málefni Hjálparstarfsins og hvernig hver og einn og hópurinn í heild sinni geti stutt við starfið. Ávallt er pláss fyrir nýja Vini Hjálparstarfsins.
Hjartanlega velkomin
Öll sem hafa áhuga á starfi Hjálparstarfs kirkjunnar og vilja leggja starfinu lið eru hjartanlega velkomin.
Vinir Hjálparstarfs kirkjunnar koma saman í aðdraganda aðventu- og jóla