Guðsþjónusta í Grensáskirkju kl. 11

Sjómannadagurinn í Grensáskirkju

Guðsþjónusta kl. 11.  Sr. Sigríður Kristín þjónar fyrir altari ásamt messuþjónum. Kór Grensáskirkju undir stjórn Ástu Haraldsdóttur kantor kirkjunnar leiðir söfnuðinn í söng. 

Heitt er á könnunni fyrir og eftir guðsþjónustuna. 

Verið hjartanlega velkomin í Grensáskirkju 

Guðspjall Sjómannadags

Nú fór Jesús í bátinn og lærisveinar hans fylgdu honum. Þá gerði svo mikið veður á vatninu að bylgjurnar gengu yfir bátinn. En Jesús svaf. Þeir fara til, vekja hann og segja: „Drottinn, bjarga okkur, við förumst.“ Hann sagði við þá: „Hví eruð þið hræddir, þið trúlitlir?“ Síðan reis hann upp, hastaði á vindinn og vatnið og varð stillilogn. Mennirnir undruðust og sögðu: „Hvílíkur maður er þetta? Jafnvel vindar og vatn hlýða honum.“