Guðsþjónusta í Grensáskirkju kl. 11

Á fyrsta sunnudegi eftir páska heyrum við frásöguna af Jesú á ströndinni. Þar bauð hann lærisveinunum grillaðan fisk og brauð þegar þeir komu þreyttir að landi eftir erfiða næturvinnu. Guðsþjónustan hefst kl. 11 og er í umsjá sr. Maríu, Ástu organista, messuþjóna og Kirkjukórs Grensáskirkju.