Guðsþjónusta í Grensáskirkju
Guðsþjónusta 12. júlí kl. 11. Sr. Sigríður Kristín Helgadóttir þjónar fyrir altari ásamt messuþjónum. Ásta Haraldsdóttir organisti og Kirkjukór Grensáskirkju leiða söfnuðinn í söng. Heitt er á könnunni og sætur biti með bæði fyrir og eftir guðsþjónustuna. Verið velkomin í Grensáskirkju.
6. sunnudagur eftir þrenningarhátíð
Sunnudagurinn 12. júlí er 6. sunnudagur eftir þrenningarhátíð. "Ég kom ekki til að afnema heldur uppfylla" segir Jesús í guðspjalli dagsins sem fengið er úr Matteusarguðspjalli.
Við guðsþjónustuna syngjum við m.a. sálm Eyglóar Eyjólfsdóttur Í dagsins dýrðarmynd og höldum okkur á sumarlegum nótum.
Í dagsins dýrðarmynd
er dimmblá fjallalind,
minn hugur leitar í hæðir til þín
í dagsins dýrðarmynd.
Þá syngjum við einnig einn af nýju sálmunum í Sálmabókinni, Færðu mér ljósið, eftir Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson og Sigurður Flosason.
Færðu mér ljósið langt og mjótt,
logann granna sem teygir sig
:,: út í alheimsdjúpa nótt.:,: