Guðsþjónusta í Grensáskirkju
Guðsþjónusta í Grensáskirkju 5. júlí kl. 11
Ásta Haraldsdóttir organisti leiðir söfnuðinn í söng ásamt Kirkjukór Grensáskirkju.
Sr. Sigríður Kristín og messuþjónar kirkjunnar þjóna fyrir altari.
Heitt er á könnunni fyrir og eftir stundina, verið hjartanlega velkomin í Grensáskirkju.
Pétur játar, Jesús er Drottinn
Sunnudaginn 5. júlí er 5. sunndagur eftir þrenningarhátíð. Þá heyrum við frásögnina af því er Jesús varpar fram spurningu. "Hvern segið þið mig vera?" Þessi spurning gæti allt eins snúið að hverjum þeim sem situr í kirkjunni. Hver er Jesús í þínum huga?
Við flettum upp í Matteusarguðspjalli og lesum:
Jesús spyr: „En þið, hvern segið þið mig vera?“
Símon Pétur svarar: „Þú ert Kristur, sonur hins lifanda Guðs.“
Þá segir Jesús við hann: „Sæll ert þú, Símon Jónasson! Enginn maður hefur opinberað þér þetta heldur faðir minn í himninum. Og ég segi þér: Þú ert Pétur, kletturinn, og á þessum kletti mun ég byggja kirkju mína og máttur heljar mun ekki á henni sigrast. Ég mun fá þér lykla himnaríkis og hvað sem þú bindur á jörðu mun bundið á himnum og hvað sem þú leysir á jörðu mun leyst á himnum.“