Fermingarbörn og foreldrar hvött til að mæta

Sunnudaginn 23. ágúst kl. 11 er guðsþjónusta í Grensáskirkju. 

Þar sem fermingarstarfið er formlega að hefjast þá bjóðum við fermingarbörn, foreldra og forráðamenn sérstaklega vekomin.

Prestar kirkjunnar þjóna fyrir altari og Kirkjukór Grensáskirkju leiðir söfnuðinn í söng.  Jónas Þórir leikur á hljóðfæri kirkjunnar.  

Heitt er á könnunni fyrir og eftir guðsþjónustuna og því gott svigrúm til að ræða málin. 

 

 

 

Hvar skrái ég barnið mitt í fermingarstarf?

Enn er svigrúm til að skrá sig í fermingarfræðsluna í Fossvogsprestakalli.  

Skráning fer fram á kirkja.is