Grensáskirkja 4. október kl. 11 - "Guði er ekkert um megn.“

Sunnudaginn 4. október kl. 11 er guðsþjónusta í Grensáskirkju.

Krakkasálmar, stund sem ungir leiðtogar leiða fyrir yngri börn fer fram á sama tíma í safnaðarheimili kirkjunnar.  

Ásta Haraldsdóttir organisti kirkjunnar og Kirkjukór Grensáskirkju leiða söfnuðinn í söng. 

Sr. Sigríður Kristín þjónar fyrir altari ásamt messuþjónum. 

Heitt er á könnunni fyrir og eftir stundina. 

Verið velkomin í Grensáskirkju.  

Úlfaldi og nálarauga

Á sunnudaginn heyrum við orð Jesú úr Markúsarguðspjalli um auðmanninn, úlfaldann og nálaraugað.  

"Lærisveinunum brá mjög við orð Jesú en hann sagði aftur við þá: „Börn, hve torvelt er að komast inn í Guðs ríki. Auðveldara er úlfalda að fara gegnum nálarauga en auðmanni að komast inn í Guðs ríki.“
En þeir urðu steini lostnir og sögðu sín á milli: „Hver getur þá orðið hólpinn?“
Jesús horfði á þá og sagði: „Menn hafa engin ráð til þessa en Guði er ekkert um megn.“