Guðsþjónusta í Grensáskirkju
Gleðidagar í kirkjunni - Jesús sagði: "Ég er góði hirðirinn."
19. apríl kl. 11 verður guðsþjónusta í Grensáskirkju kl. 11.
Sr. Sigríður Kristín predikar og messuþjónar taka þátt í lestri ritningarorða og bæna.
Ásta Haraldsdóttir kantor kirkjunnar leiðir söfnuðinn í söng.
Heitt er á könnunni fyrir og eftir guðsþjónustuna.
Verið hjartanlega velkomin.
Vers vikunnar
Vers vikunnar
Jesús sagði: „Ég er góði hirðirinn. Mínir sauðir heyra raust mína og ég þekki þá og þeir fylgja mér. Ég gef þeim eilíft líf og þeir skulu aldrei að eilífu glatast.“ (Jóh 10.11a, 27-28a)
Umsjónaraðili/-aðilar