Guðsþjónusta kl. 11
Sunnudaginn 21. júní er guðsþjónusta í Grensáskirkju. Þetta er 3. sunnudagur eftir þrenningarhátíð og við heyrum guðspjallið um týnda soninn. Sr. Sigríður Kristín og messuþjónar þjóna fyrir altari. Ásta Haraldsdóttir organisti og Kirkjukór Grensáskirkju leiða söfnuðinn í söng.
Verið hjartanlega velkomin í Grensáskirkju, heitt er á könnunni fyrir og eftir guðsþjónustuna.
Guðspjall sunnudagsins segir frá týndum syni: "En sonurinn sagði við hann: Faðir, ég hef syndgað móti himninum og gegn þér. Ég er ekki framar verður að heita sonur þinn. Þá sagði faðir hans við þjóna sína: Komið fljótt með hina bestu skikkju og færið hann í, dragið hring á hönd hans og skó á fætur honum. Sækið og alikálfinn og slátrið, við skulum eta og gera okkur glaðan dag. Því að þessi sonur minn var dauður og er lifnaður aftur. Hann var týndur og er fundinn. Tóku menn nú að gera sér glaðan dag."