Föndur í TTT-starfinu í Grensáskirkju
Við ætlum að föndra af hjartans list í TTT-starfinu okkar á þriðjudaginn. Við ætlum að velta því fyrir okkur hvað það merkir að vera manneskja og athuga hvort að við náum að koma því listilega niður á blað. Hlökkum til að föndra með ykkur.
Sjö samverur í kirkjunni
Kirkjuprakkarar, fyrir börn á aldrinum 6-9 ára, eru á þriðjudögum kl. 14:50-16:00.
Boðið verður upp á sjö stundir, sex þriðjudaga og lokahóf í fjölskyldumessu í Grensáskirkju sunnudaginn 3. mars kl. 11.
Dagsetningar
Þriðjudaginn 23. janúar
Þriðjudaginn 30. janúar
Þriðjudaginn 6. febrúar
Þriðjudaginn 13. febrúar
Þriðjudaginn 20. febrúar
Þriðjudaginn 27. febrúar
Sunnudaginn 3. mars - Uppskeruhátið í fjölskyldumessu
Skráning og nánari upplýsingar eru á heimasíðu kirkjunnar, undir flipanum Æskulýðsstarf.
Við hlökkum til að eiga skapandi og skemmtilegra stundir saman í kirkjunni okkar. Verið hjartanlega velkomin í barnastarfið í Grensáskirkju.
Umsjón með starfinu hafa Daníel Ágúst Gautason æskulýðsprestur, daniel@kirkja.is, og leiðtogar.