Fögnum fjölbreytileikanum í Grensáskirkju.

Sunnudaginn 9. ágúst komum við saman í Grensáskirkju og fögnum fjölbreytileikanum í regnbogamessu kl. 11. Sr. María Gunnarsdóttir formaður Transvina flytur hugvekju. Kór Grensáskirkju syngur undir stjórn Ástu Haraldsdóttur. Sr. Laufey Brá Jónsdóttir þjónar fyrir altari ásamt messuþjónum. Verið hjartanlega velkomin til okkar í Grensáskirkju.