Flæðimessa í Grensáskirkju

Flæðimessa með stöðvum fer fram í Grensáskirkju sunnudaginn 22. nóvember kl. 11.00.

Messan er jafnframt uppskeruhátíð Kirkjuprakkara og TTT í tilefni af því að barnastarfi haustsins er að ljúka. Í haust hafa börnin kynnst biblíusögunum í gegnum leik og LEGO. Í messunni höldum við áfram á þeirri braut og beinum sjónum að sköpun heimsins. Öllum gefst tækifæri til að taka virkan þátt í stundinni og fara á milli stöðva víðs vegar um kirkjuna. Sr. Sólveig Franklínsdóttir, æskulýðsprestur, prédikar og þjónar ásamt leiðtogum barna- og æskulýðsstarfsins og kirkjuþjónum. Ásta Haraldsdóttir kantor leiðir tónlistina og stjórnar kór Grensáskirkju.

Að messu lokinni verður boðið upp á kirkjukaffi að hætti Kirkjuprakkara.

Verið hjartanlega velkomin í Grensáskirkju! 

„Guð sá að það var gott“

Flæðimessa með stöðvum fer fram í Grensáskirkju sunnudaginn 22. nóvember kl. 11.00.

Messan er jafnframt uppskeruhátíð Kirkjuprakkara og TTT í tilefni af því að barnastarfi haustsins er að ljúka. Í haust hafa börnin kynnst biblíusögunum í gegnum leik og LEGO. Í messunni höldum við áfram á þeirri braut og beinum sjónum að sköpun heimsins. Öllum gefst tækifæri til að taka virkan þátt í stundinni og fara á milli stöðva víðs vegar um kirkjuna.

Sr. Sólveig Franklínsdóttir, æskulýðsprestur, prédikar og þjónar ásamt leiðtogum barna- og æskulýðsstarfsins og kirkjuþjónum. Ásta Haraldsdóttir kantor leiðir tónlistina og stjórnar kór Grensáskirkju.

Að messu lokinni verður boðið upp á kirkjukaffi að hætti Kirkjuprakkara.

Verið hjartanlega velkomin í Grensáskirkju!