Jesús og við

Jesús og við er yfirskrift fjölskyldustöðvamessu sunnudaginn 24. september kl. 11:00. Ásta Haraldsdóttir spilar, kórkonur úr Domus Vox syngja, Daníel Ágúst djákni og sr. Eva Björk þjóna ásamt messuþjónum á öllum aldri. Fjölskyldumessa er helgihald fyrir unga og eldri. Í stöðvamessu er boðið uppá stöðvar þar sem fjölskyldan fær að ganga um kirkjuna og kveikja á kerti, fá krossmark með vígðu vatni á ennið, fá brauð og vínber við altarið og setja hugsanir sínar til Jesú á blað. Verið öll hjartanlega velkomin