Við bjóðum Skólahljómsveit Austurbæjar hjartanlega velkomna

Verið öll velkomin í fjölskyldumessu í Grensáskirkju sunnudaginn næstkomandi, 26. nóvember, kl. 11.

Skólahljómsveit Austurbæjar, C-sveitin, mun leika í messunni. Skólastjóri og stjórnandi Skólahljómsveitar Austurbæjar er Snorri Heimisson.

Í tilefni af þakkargjörðarhátíðinni ætlum við að fjalla um þakklætið og athuga hvort að við náum í sameiningu ekki að fylla kirkjuna okkar af þakklæti.

Boðið verður upp á hressingu í lok stundarinnar.

Að þessu sinni þjóna sr. Danni, Ásta organisti og Kirkjukór Grensáskirkju ásamt ungleiðtogum og messuþjónum.