Fermingarbörn næsta vetrar hjartanlega velkomin

Fermingarstörfin í Fossvogsprestakalli hefjast á þriggja daga fermingarnámskeiði miðvikudaginn 19. ágúst nk. kl. 9-12. Námskeiðið hefst í báðum kirkjum, þar sem fermingarbörnin mæta í þá kirkju sem þau ætla að fermast í. Síðan á fimmtudeginum 20. ágúst kl. 9-12 mun hópurinn allur, úr báðum kirkjum, mæta í Grensáskirkju, þar sem dagskráin þann dag fer fram. Lokst á föstudeginum 21. ágúst kl. 9-12 mun hópurinn allur, úr báðum kirkjum, mæta í Bústaðakirkju, þar sem dagskráin þann dag fer fram.

Upplýsingafundur með fermingarbörnum og foreldrum fer síðan fram sunnudaginn 23. ágúst nk. kl. 11 í Grensáskirkju og kl. 20 í Bústaðakirkju. Fundirnir verða haldnir að loknu helgihaldi. Þar verður rætt um fyrirkomulag fræðslustarfanna og starf æskulýðsfélagsins einnig kynnt. 

Ef einhverjar spurningar vakna endilega hafið samband við prestana, séra Laufeyju Brá, séra Sigríði Kristínu og séra Þorvald. 

Verið hjartanlega velkomin til fermingarfræðslu í Bústaðakirkju og Grensáskirkju. 

Verið hjartanlega velkomin til þátttöku