Feluleikur í myrkri í æskulýðsstarfinu

Búú! Næsta þriðjudag er Hrekkjavaka og við tökuð því auðvitað hátíðlega. Í æskulýðsstarfinu ætlum við að fara í feluleik í myrkri í kirkjunni. Það verður skuggalegt, skelfilegt, spennandi og skemmtilegt. Auðvitað er velkomið að mæta í búningum! 

Þá er líka velkomið að mæta í Grikk eða gott í Grensáskirkju og fá eitthvað góðgæti.

Æskulýðsstarfið er í Grensáskirkju þriðjudaga kl. 20-21.30. Allir unglingar í 8.-10. bekk eru velkomnir.

Umsjón með starfinu hafa Danni, Hilda og Viktoría.

Umsjónaraðili/-aðilar