Félagsstarf eldriborgara miðvikudag frá kl 13-16, Pylsugrill og fer fram í Grensáskirkju

Opið hús frá kl 13-16, síðasta samvera vorsins. Við verðum í safnaðarsal Grensáskirkju í þetta sinn, þar hefur allt verið endurnýjað og bjóðum við ykkur að koma og njóta. Við munum grilla pylsur og eiga notalega stund saman og að sjálfsögðu verður kaffi og sætur moli með. Hægt verður að spila eins og vant er og endilega taka með handavinnuna. Hólmfríður djákni stjórnar leikjum. Hlökkum til að sjá ykkur í Grensáskirkju í vor stemmningu.