Boltaleikir í æskulýðsstarfinu í Grensáskirkju

Við ætlum að skella í boltaleiki í æskulýðsstarfinu á þriðjudaginn. Skotbolti? Fótbolti? Handbolti? Körfubolti? Asni? Verpa eggjum? Blak? Kíló? Brennó? Svo margir möguleikar og það kemur allt í ljós.

Æskulýðsstarfið er í Grensáskirkju þriðjudaga kl. 20-21.30. Allir unglingar í 8.-10. bekk eru velkomnir.

Umsjón með starfinu hafa Hilda, Viktoría og Danni.