Bollaleikir í æskulýðsstarfinu í Grensáskirkju

Við ætlum í bollaleiki þessa vikuna í æskulýðsstarfinu. Það verða allskonar þrautir í boði með marglita plastbollunum sem að við þekkjum svo vel!

Æskulýðsstarfið er í Grensáskirkju þriðjudaga kl. 20-21.30. Allir unglingar í 8.-10. bekk eru velkomnir.

Umsjón með starfinu hafa Hilda, Viktoría og Sólveig.