Stúlkur úr Stúlknakór Domus Vox syngja

Sunnudaginn 19. nóvember nk. kl. 11 fer fram messa í Grensáskirkju. Stúlkur úr Stúlknakór Reykjavíkur frá Domus Vox munu syngja. Ásta Haraldsdóttir kantór kirkjunnar leikur á orgel. Séra Þorvaldur Víðisson prédikar og þjónar fyrir altari, ásamt messuþjónum. 

Textar dagsins fjalla um nærveru Jesú í erfiðleikum. Í guðspjallatextanum úr Mattheusarguðspjalli segir m.a: Á þeim tíma tók Jesús svo til orða: "Ég vegsama þig, faðir, Drottinn himins og jarðar, að þú hefur hulið þetta spekingum og hyggindamönnum en opinberað það smælingjum. Já, faðir, svo var þér þóknanlegt. Allt hefur faðir minn falið mér og enginn þekkir soninn nema faðirinn, né þekkir nokkur föðurinn nema sonurinn og sá er sonurinn vill opinbera hann. Komið til mín, öll þér sem erfiðið hafið og þunga eruð hlaðin, og ég mun veita yður hvíld. Takið á yður mitt ok og lærið af mér því að ég er hógvær og af hjarta lítillátur og þá munuð þér finna hvíld sálum yðar. Því að mitt os er ljúft og byrði mín létt."

Við biðjum vitanlega fyrir friði í heiminum, friði hvarvetna sem ófriður ríkir. Við biðjum einnig sérstaklega fyrir Grindvíkingum öllum og íbúum Reykjaness og aðstæðum á Reykjanesi. Við biðjum að góður Guð muni vel fyrir sjá, vernda fólk og innviði, í Jesú nafni. 

Verið hjartanlega velkomin til messu í Grensáskirkju.  

Biðjum fyrir Grindvíkingum

Sunnudaginn 19. nóvember nk. kl. 11 fer fram messa í Grensáskirkju. Stúlkur úr Stúlknakór Reykjavíkur frá Domus Vox munu syngja. Ásta Haraldsdóttir kantór kirkjunnar leikur á orgel. Séra Þorvaldur Víðisson prédikar og þjónar fyrir altari, ásamt messuþjónum. 

Textar dagsins fjalla um nærveru Jesú í erfiðleikum. Í guðspjallatextanum úr Mattheusarguðspjalli segir m.a: Á þeim tíma tók Jesús svo til orða: "Ég vegsama þig, faðir, Drottinn himins og jarðar, að þú hefur hulið þetta spekingum og hyggindamönnum en opinberað það smælingjum. Já, faðir, svo var þér þóknanlegt. Allt hefur faðir minn falið mér og enginn þekkir soninn nema faðirinn, né þekkir nokkur föðurinn nema sonurinn og sá er sonurinn vill opinbera hann. Komið til mín, öll þér sem erfiðið hafið og þunga eruð hlaðin, og ég mun veita yður hvíld. Takið á yður mitt ok og lærið af mér því að ég er hógvær og af hjarta lítillátur og þá munuð þér finna hvíld sálum yðar. Því að mitt ok er ljúft og byrði mín létt."