Batamessa í Grensáskirkju

Vinir í bata í Grensáskirkju bjóða til batamessu sunnudaginn 1. nóvember kl. 17:00.
Njótum samverunnar og iðkum 11. sporið saman. Við heyrum vitnisburði þeirra sem þekkja sporin og hvað þau gera okkur gott.

Að messu lokinni bjóða Vinir í bata í Grensáskirkju upp á kaffi og hressingu.

Bjóðum með okkur gestum og kynnum sporastarfið.

Öll velkomin!