Barnastarfið byrjar

Barnastarfið byrjar hjá okkur á morgun. 

Kirkjuprakkarar (6-9 ára) eru á þriðjudögum kl. 14:50-16:00 í Grensáskirkju. 

TTT (10-12 ára) eru á þriðjudögum kl. 16:10-17:10 í Grensáskirkju. Skráning er á kirkja.is.

Yfirskirftin að þessu sinni er Sköpuð til að vera skapandi. Öll erum við ólík á okkar eigin hátt og það er engin ein leið til þess að vera skapandi.

Við viljum hvetja börnin til þess að virkja sín tjáningarform. Við viljum sýna í verki hvernig skapandi hugar og hendur efla fjölbreytileikann og gleðina í heiminum. Við munum segja sögur úr Biblíunni og tala um hvernig þessar sögur geta hjálpað okkur í okkar daglega lífi.

Skráning er hér á síðunni undir flipanum Æskulýðsstarf.