Barna- og fjölskyldumessa í Grensáskirkju á pálmasunnudag

Á pálmasunnudag minnumst við þess þegar Jesús kom til Jerúsalem rétt fyrir páskahátíðina og fólkið tók honum fagnandi. Í barna- og fjölskyldumessu kl. 11 bjóðum við barnamessufjölskyldurnar úr Bústaðakirkju velkomnar en þar er verið að ferma á sama tíma. 

Sr. Daníel Ágúst Gautason og sr. María G. Ágústsdóttir þjóna ásamt Iðunni Helgu Zimsen og messuhópi, Ástu Haraldsdóttur kantor og Kirkjukór Grensáskirkju. 

Fermingarmessur eru síðan kl. 13 í báðum kirkjum Fossvogsprestakalls á pálmasunnudag.