Barna- og fjölskyldumessa í Grensáskirkju

Næstu tvo sunnudaga, þann 17. og 24. mars, verða barnamessurnar færðar úr Bústaðakirkju í Grensáskirkju vegna ferminga. 

Sunnudaginn 17. mars þjóna sr. Daníel Ágúst Gautason og sr. María G. Ágústsdóttir ásamt messuhópi og Ástu Haraldsdóttur. Kórkonur frá Domus Vox syngja undir stjórn Margrétar Pálmadóttur.

Verum öll velkomin á notalega og skemmtilega stund þar sem sungin verða sunnudagaskólalög í bland við sálma og aðra söngva. 

Hressing og samvera á eftir í safnaðarsalnum.