Alþjóðlegur bænadagur kvenna í Grensáskirkju

Alþjóðlegur bænadagur kvenna er árleg samvera þar sem konur um allan heim leiða bæn og íhugun í anda samstöðu, vonar og kærleika. Dagurinn er haldinn fyrsta föstudag í mars og er efni hans í hvert sinn unnið af konum frá einu landi.

Í ár er bænadagurinn tileinkaður konum frá Nígeríu og byggir stundin á sögum þeirra, bæn og tónlist. Með sameiginlegri þátttöku tökum við þátt í alþjóðlegri hreyfingu sem hefur verið haldin í rúmlega hundrað ár.

Félagar úr Ljósbroti og kvennakór KFUK syngja undir stjórn Keith Reed.
Kaffi og samvera á eftir.

Öll eru hjartanlega velkomin að sameinast í bæn á Alþjóðlegum bænadegi kvenna í Grensáskirkju, föstudaginn 6. mars kl. 18.00.

Umsjónaraðili/-aðilar