Kirkjuprakkarar (6-9 ára) eru á þriðjudögum kl. 14:50-16:00 í Grensáskirkju. 

TTT (10-12 ára) eru á þriðjudögum kl. 16:10-17:10 í Grensáskirkju. 

Skráning er á kirkja.is.

Allskonar föndur í barnastarfinu

Það verður allskonar föndur í boði næst hjá okkur í barnastarfinu. Málning, litir, perlur, klipperí og fínerí.

Það er svo óendanlega mikið sem að við getum búið til ef að við bara sleppum ímyndunaraflinu okkar lausu.

Við munum heyra biblíusöguna um hann góða hirðinn sem að týndi kindinni sinni. Þrátt fyrir að eiga 99 lagði hann samt af stað til að leita að týndu kindinni sinni.

Umsjón með starfinu hafa Danni (daniel@kirkja.is), Sólveig og Hilda.