Aldrei einn- bænir karla
Sunnudaginn 8. mars kl. 11 komum við saman í bæn í Grensáskirkju. Karlmenn leiða bænir sem eru tileinkaðar körlum og krabbameini og beinum við sjónum að von og ljósi inn í erfiðar aðstæður. Kór Grenáskirkju syngur undir stjórn Ástu Haraldsdóttur, organista. Séra Laufey Brá Jónsdóttir prédikar og þjónar fyrir altari.
Í Grensáskirkju er marsmánuður svokallaður Blár mars, þar sem málefni karla og krabbameins eru í forgrunni. Mánuðurinn er jafnframt tileinkaður stuðningi við Ljósið og Krabbameinsfélagið og gefst gestum tækifæri til að leggja málefnunum lið.
Mætumst í bæn á sunnudaginn kl. 11 í Grensáskirkju. 💙
Í Mottumars í ár er athyglinni beint að mikilvægi stuðnings í krabbameinsferli og eru karlmenn hvattir sérstaklega til að nýta þá aðstoð sem í boði er. Enginn á að þurfa að takast á við krabbamein einn – ef við teygjum fram höndina er næsta víst að okkur verði rétt hjálparhönd. Samvera með fjölskyldu og vinum skiptir miklu, en leiðirnar eru margar og mikilvægt að hver finni sína. Á mottumars.is má finna upplýsingar um gagnleg úrræði.