Afmælispartý hjá TTT-starfinu í Grensáskirkju

Til hamingju með afmælið!

Það á alltaf einhver afmæli. Og við ætlum svo sannarlega að halda það hátíðlega næsta þriðjudag hjá okkur í TTT-starfinu, sem er fyrir öll á aldrinum 10-12 ára. Afmæliskaka, afmælissöngur og afmælisleikir. Þvílíkt dúndur fjör sem að þetta verður hjá okkur.

Þetta er síðasta þriðjudagssamveran hjá okkur í barnastarfinu þessa önn. Við endum svo starfið með uppskeruhátíð í fjölskyldumessu sunnudaginn 3. mars kl. 11 í Grensáskirkju.

Skráning er á heimasíðunni okkar, kirkja.is, undir flipanum 'Æskulýðsstarf'.

Umsjón með starfinu hafa Danni og Hilda.