Afmælispartý hjá Kirkjuprökkurunum í Grensáskirkju
Afmælispartý hjá Kirkjuprökkurunum í Grensáskirkju
Til hamingju með afmælið!
Það á alltaf einhver afmæli. Og við ætlum svo sannarlega að halda það hátíðlega næsta þriðjudag hjá okkur Kirkjuprökkurunum. Afmæliskaka, afmælissöngur og afmælisleikir. Þvílíkt dúndur fjör sem að þetta verður hjá okkur.
Þetta er síðasta þriðjudagssamveran hjá okkur í barnastarfinu þessa önn. Við endum svo starfið með uppskeruhátíð í fjölskyldumessu sunnudaginn 3. mars kl. 11 í Grensáskirkju.
Skráning er á heimasíðunni okkar, kirkja.is, undir flipanum 'Æskulýðsstarf'.
Umsjón með starfinu hafa Danni og Hilda.
Umsjónaraðili/-aðilar