Afmæli í æskulýðsstarfinu í Grensáskirkju

Til hamingju með afmælið! Það á alltaf einhver afmæli og við ætlum að halda rækilega upp á það í Pony næsta þriðjudag. Þetta verður klassísk afmælisveisla: Pakkaleikur, stóladans, limbó og auðvitað afmæliskaka!

Æskulýðsstarfið er í Grensáskirkju þriðjudaga kl. 20-21.30. Allir unglingar í 8.-10. bekk eru velkomnir.

Umsjón með starfinu hafa Hilda, Viktoría og Danni.