Æskulýðsstarf
Æskulýðsfélagið Pony er æskulýðsfélag fyrir unglinga í 8.-10. bekk. Æskulýðsfundirnir fara fram í safnaðarheimili Grensáskirkju á þriðjudögum klukkan 20.00-21.30. Félagið er samstarfsverkefni Bústaðakirkju og Grensáskirkju. Þátttaka er ókeypis.
Æskulýðsfélagið er vettvangur unglinga til að leika, læra og efla bænalíf sitt í góðu og heilbrigðu umhverfi. Áhersla er á að hafa dagskrána fjölbreytta og skemmtilega. Félagið tekur virkan þátt í viðburðum og mótum ÆSKH og ÆSKÞ.
Umsjón með æskulýðsstarfinu hefur Sólveig Franklínsdóttir, æskulýðsfullltrúi ásamt leiðtogum og ungleiðtogum. Upplýsingar um starfið veitir Sólveig á solveig@kirkja.is.
Hæfileikakeppni og undirbúningur fyrir mótið í Vatnaskógi
Hæfileikakeppni og undirbúningur fyrir mótið í Vatnaskógi
Hæfileikakeppni í Pony þriðjudaginn 25. nóvember og undirbúningur fyrir mótið í Vatnaskógi.
Umsjónaraðili/-aðilar