Kynningarfundur og hópefli
Æskulýðsstarfið hefst að nýju 8. september kl. 20:00.
Við hlökkum til að hittast aftur eftir sumarfrí.
Einnig bjóðum við fermingarbörnin sérstaklega velkomin til okkar í kvöld.
Við kynnumst, förum í leiki og höfum gaman saman.
Leiðtogaknús!
Æskulýðsstarf
Æskulýðsfélagið Pony er æskulýðsfélag fyrir unglinga í 8.-10. bekk. Æskulýðsfundirnir fara fram í safnaðarheimili Grensáskirkju, gengið inn um aðalinnganginn, á þriðjudögum klukkan 20.00-21.30. Félagið er samstarfsverkefni Bústaðakirkju og Grensáskirkju. Þátttaka er ókeypis.
Æskulýðsfélagið er vettvangur unglinga til að leika, læra og efla bænalíf sitt í góðu og heilbrigðu umhverfi. Áhersla er á að hafa dagskrána fjölbreytta og skemmtilega. Félagið tekur virkan þátt í viðburðum og mótum ÆSKH og ÆSKÞ.
Umsjón með æskulýðsstarfinu hafa Sr. Sólveig Franklínsdóttir, æskulýðsprestur, Gabríel Bjarmi Jónsson, Iðunn Helga Zimsen og Gréta Petrína Zimsen ásamt ungleiðtogum. Upplýsingar um starfið veitir Sólveig á solveig@kirkja.is