Æskulýðsstarf
Æskulýðsfélagið Pony er æskulýðsfélag fyrir unglinga í 8.-10. bekk. Æskulýðsfundirnir fara fram í safnaðarheimili Grensáskirkju, gengið inn um aðalinnganginn, á þriðjudögum klukkan 20.00-21.30. Félagið er samstarfsverkefni Bústaðakirkju og Grensáskirkju. Þátttaka er ókeypis.
Æskulýðsdagurinn - Mitt líf og TIkTok
Í kvöld undirbúum við okkur fyrir æskulýðsdaginn, sem er 1. mars. Aðalatriðið í ár er hópdans við nýtt lag eftir Írisi Rós Ragnhildardóttur. VIð æfum dansinn og lærum textann við lagið sem er byggt á boðskap sögunnar um Bartímeus blinda sem verður sagt frá í guðspjallatexta dagsins.
VIð tökum dansatriðin upp og setjum myndböndin á TikTok. Myndböndin eiga að vera merkt myllumerkjunum #kirkjan#leitandi#æskulýðsdagur.
Umsjónaraðili/-aðilar