Æskulýðsdagurinn í Grensáskirkju
Æskulýðsdagurinn í Grensáskirkju
Æskulýðsdagur kirkjunnar er sunnudaginn 1. mars. Þá hefst jafnframt blár mars í Grensáskirkju.
Í tilefni dagsins verður æskulýðsmessa sem unga fólkið sér um og þá ætlar það að standa fyrir vöfflukaffi til styrktar Ljósinu.
Sólveig Franklínsdóttir æskulýðsfulltrúi og leiðtogar æskulýðsstarfsins í Grensáskirkju leiða guðsþjónustuna.
Ásta Haraldsdóttir kantor kirkjunnar ásamt Stúlknakór Reykjavíkur, undir stjórn Margrétar Pálmadóttur gleðja söfnuðinn með tónlist og söng. Sr. Sigríður Kristín þjónar fyrir altari.
Verið velkomin í Grensáskirkju.
Dagskráin í Bláum mars í Grensáskirkju, sjá hér
Dagskráin í Bláum mars í Grensáskirkju, sjá hér
Hér má sjá dagskrána í Bláum mars í Grensáskirkju.
Umsjónaraðili/-aðilar