02
2024
maí
TónGraf og TónFoss
TónGraf og TónFoss
TónGraf og TónFoss bjóða upp á tónlistarnám og barnakórastarf í Bústaðakirkju, í samstarfi við kirkjuna. Samstarfið hófst á liðnum vetri og gekk vonum framar og lítum við björtum augum til samstarfsins á komandi vetri. Upplýsingar má finna á heimasíðu Tónlistarskólans í Grafarvogi og fer skráning fram í gegnum rafræna Reykjavík. Verið hjartanlega velkomin í starfið í Bústaðakirkju. Myndin með þessari frétt er tekin á Sumardaginn fyrsta er barnakór TónGraf og TónFoss kom fram í Bústaðakirkju.