03
2024 maí

Kyrrðarbænanámskeið, öllum opið

Kyrrðarbænasamtökin á Íslandi ásamt Grensáskirkju bjóða upp á námskeið um Kyrrðarbæn laugardaginn 2. september nk. kl. 10-15 í Grensáskirkju.

Hvað er kyrrðarbæn?

Kyrrðarbæn er íhugunaraðferð úr kristinni hefð sem hefur verið stunduð í einhverri mynd alveg frá frumkristni. Á námskeiðinu verður fjallað um þessa íhugunaraðferð, hún kennd og iðkuð.

Kyrrðarbæn er afar einföld iðkun sem fer fram í þögn og gengur út á að hvíla í nærveru Guðs og samþykkja verk heilags anda innra með okkur. Þótt aðferðin sé einföld hefur hún umbreytandi áhrif á iðkandann með auknum andlegum þroska sem leiðir m.a. til aukinnar sjálfsþekkingar og dýpra sambands við Guð og menn.

Kennarar, verð og skráning

Kennarar námskeiðsins eru sr. María G. Ágústsdóttir, prestur í Grensáskirkju, sr. Bára Friðriksdóttur og Ingunn Björnsdóttir, sálgætir og nemandi í andlegri leiðsögn. María, Bára og Ingunn eru með kennsluréttindi í Kyrrðarbæn og hafa ástundað hana um langt árabil.
Verð: 4.000 kr. Innifalið er léttur hádegismatur og námsgögn. Nokkrum dögum fyrir námskeiðið fá þátttakendur kröfu í heimabankann sinn fyrir námskeiðsgjaldinu.
Skráning: https://kyrrdarbaen.skramur.is/input.php?id=17

Spurningar?

Ef spurningar vakna má senda tölvupóst á Ingunni á netfangið ingunnbjornsdottir@simnet.is, en hún veitir nánari upplýsingar. 

Hjartanlega velkomin

Námskeiðið er opið öllum, verið hjartanlega velkomin á námskeið í Kyrrðarbæn í Grensáskirkju.