
Skráning stendur yfir
Barnastarfið í Grensáskirkju er að hefjast. Kirkjuprakkarar eru ætlaðir krökkum á aldrinum 6-9 ára og TTT er ætlað börnum á aldrinum 10-12 ára. Skráning stendur yfir. Biblíusögur með leik og LEGÓ verður þemað.
Nánari upplýsingar hér fyrir neðan.
Verið hjartanlega velkomin.

Nánari upplýsingar
Kirkjuprakkarar
Kirkjuprakkarar í Grensáskirkju fyrir 6-9 ára (1.-4. bekk).
Haustnámskeiðið hefst þriðjudaginn 30. september kl. 15.00-16.30 og verður vikulega í sex skipti til og með 4. nóvember. Endar á fjölskyldumessu í Grensáskirkju sunnudaginn 9. nóvember kl. 11.00.
Yfirskriftin er Biblíusögur með leik og LEGO. Við munum lesa nokkrar Biblíusögur og tengja boðskap þeirra við nútímann. Við munum bæði leika þær með léttum leikmunum og byggja þær með LEGO kubbum.
Foreldrar skrá börn sín til þátttöku með því að fylla út skráningarupplýsingar á heimasíðunni kirkja.is eða með því að senda upplýsingarnar á netfangið solveig@kirkja.is.
TTT – Tíu til tólf ára
Tíu til tólf ára starfið (TTT) í Grensáskirkju er fyrir öll börn á aldrinum 10-12 ára (5.-7. bekkur).
Haustnámskeiðið hefst þriðjudaginn 30. september kl. 16.30-18.00 og verður vikulega í sex skipti til og með 4. nóvember. Endar á fjölskyldumessu í Grensáskirkju sunnudaginn 9. nóvember kl. 11.00.
Yfirskriftin er Biblíusögur með leiklist og tónlist. Við munum lesa nokkrar Biblíusögur og tengja boðskap þeirra við nútímann. Við munum tengja þær við leiklist og tónlist. Þátttakendur fá tækifæri til þess að setja upp nútímalegan helgileik með léttum leikmunum og tónlist. Sumir leika eða leikstýra á meðan aðrir búa til búninga og létta leikmuni. Einnig munum við búa til stuttmynd af ferlinu og leikverkinu.
Foreldrar skrá börn sín til þátttöku með því að fylla út skráningarupplýsingar á heimasíðunni kirkja.is eða með því að senda upplýsingarnar á netfangið solveig@kirkja.is.