12
2026 October

Orðið, félag um útbreiðslu Guðs orðs

Fermingarbörnin í Bústaðakirkju og Grensáskirkju fengu Nýja testamentið að gjöf í fermingarfræðslutímanum í liðinni viku. Félagsmenn í félaginu Orðið, félagi um útbreiðslu Guðs orðs, komu færandi hendi og afhentu hverju og einu fermingarbarni testamentið að gjöf. 

Samhliða hvöttu prestarnir börnin og fjölskyldurnar til að lesa Nýja testamentið. Gott er til dæmis að byrja á að lesa eitt af fjórum guðspjöllunum, því þannig fá fermingarbörnin góða yfirsýn yfir líf og störf Jesú Krists. Síðar má bæta við hverri bókinni af annarri, en Nýja testamentið, auk Davíðssálma og Orðskviðanna geyma dýrmætar perlur frásagna og dæmisagna, ljóða og spakmæla, sem mikilvægt er að þekkja til að vera læs á menningu og samfélag. 

Einnig getur lestur Biblíunnar verið liður í andlegri líkamsrækt, þar sem boðskapurinn er uppbyggjandi og lífgefandi. 

Hjálpumst að við að rækta heilbirgða trú með lestri á textum Biblíunnar. Heilbrigð trú einkennist af kærleika og virðingu, umhyggju og upprisu.