12
2026 October

Sálmadjass

Bleikur október í Bústaðakirkju fer vel af stað þetta árið. Jónas Þórir ásamt hljómsveit riðu á vaðið á fyrstu hádegistónleikum mánaðarins, miðvikudaginn 7. október sl., með sálmajassi. 

Með Jónasi Þóri var hljómveit, þar sem Gunnar Hrafnsson lék á bassa, Einar Valur Scheving á trommur og Sigurður Flosason á saxafón. 

Hátt í hundrað manns fylgdust með þeim félögum flytja sálmana af gríðarlegri færni og skemmtilegheitum. 

Séra Sólveig Franklínsdóttir opnaði tónleikana og lauk þeim síðan með bænagjörð og faðir vori. 

Ókeypis var inn á tónleikana en tekið var við frjálsum framlögum til handa Ljósinu. Einnig voru bleiku slaufur Krabbameinsfélagsins til sölu. 

Við þökkum tónlistarsmönnunum framlag sitt til þessa góða málefnis og fyrir stórskemmtilega tónleika. Einnig þökkum við framlag tónleikagesta til Ljóssins. 

Verið hjartanlega velkomin til dagskrárinnar í Bleikum október í Bústaðakirkju. 

Næst er það Sóli Hólm

Næsta miðvikudag, 14. október kl. 12:00, munu Sóli Hólm og Jónas Þórir leika af fingrum fram. 

Dagskráin í heild sinni

Dagskrána framundan má finna hér.