Sjómannadagur í Grensáskirkju: Messa kl. 11

Messað er á sjómannadaginn í Grensáskirkju kl. 11. Prestur er sr. María G. Ágústsdóttir, ásamt henni þjónar messuhópur.

Ásta Haraldsdóttir, kantor, leikur á hljóðfærið og stjórnar söng Kirkjukórs Grensáskirkju. 

Heitt á könnunni á undan og eftir messu. Verum ávallt velkomin til kirkju.

Myndina málaði Sigrún Sigurðardóttir (1929-2019).