Hver var þessi Jónas?

Í morgunmessu í Grensáskirkju rifjum við upp söguna af Jónasi sem var í kviði stórfisks í þrjá daga og þrjár nætur. Sr. María G. Ágústsdóttir þjónar ásamt messuhópi, Jónasi Þóri og Kirkjukór Grensáskirkju. 

Kaffi og smákökur eftir messu. Verum velkomin í samfélagið í kirkjunni okkar.